22.6.2014 | 11:37
Var Þorgeir Ljósvetningagoði Framsóknarmaður?
Það ætti að vera öllum réttsýnum og vel meinandi löngu ljóst að ummæli frambjóðanda Framsóknarflokksins í Reykjavík um staðsetningu mosku í Reykjavík og nauðungarhjónabönd múslima voru einstaklingsbundin og eingöngu á hennar ábyrgð, borin fram í hita leiksins án nokkurrar aðkomu annarra málsmetandi Framsóknarmanna. Sjónarmið hennar eru framlag í umræðu sem þarf að taka og eru hvorki betri né verri en hver önnur sem fram eru sett um samspil ólíkra trúarbragða hér á landi. Stefnuna er að finna í samþykktum flokksins og þarf að lesa áður en alhæfingar ummæla einstaklinga hefjast í þeim eina tilgangi að ráðast á vel meinandi stjórnmálaflokk með því að gera honum upp skoðanir.. Ég ætla rétt að vona að allt það sem ég, framsóknarmaðurinn, læt út úr mér um stjórnmál sé ekki sjálkrafa skilið sem niðurnjörvuð stefna flokksins sem ég styð. Að endingu ætla ég að leyfa mér að álykta að Þorgeir Ljósvetningagoði hefði verið Framsóknarmaður hefði hann verið uppi nú á tímum. Lausnamiðaður rökhyggjumaður.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Þrír létust í árásinni og tólf særðust
- Keyrt á hlið Hvíta hússins
- Fundu skotsár á höfðum ferðamannanna
- Xi Jinping í París
- Viðræðum um vopnahlé lokið í bili
- Loka landamærum að Gasa eftir árás
- Fordæma ákvörðun um að banna Al Jazeera í Ísrael
- Samþykkir ekki vopnahléstillögu
- Unglingur handtekinn eftir árás á þingmann
- Líkin þrjú eru af ferðamönnunum
- Drengur hlynntur öfgahyggju skotinn af lögreglu
- Algjör friður eða enginn friður
- Áfram borgarstjóri Lundúna: Mikill ósigur Íhaldsmanna
- Ósammála um lengd vopnahlés
- Fleiri tugir látnir eftir óveður í Brasilíu
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.