Var Þorgeir Ljósvetningagoði Framsóknarmaður?

Það ætti að vera öllum réttsýnum og vel meinandi löngu ljóst að ummæli frambjóðanda Framsóknarflokksins í Reykjavík um staðsetningu mosku í Reykjavík og nauðungarhjónabönd múslima voru einstaklingsbundin og eingöngu á hennar ábyrgð, borin fram í hita leiksins án nokkurrar aðkomu annarra málsmetandi Framsóknarmanna. Sjónarmið hennar eru framlag í umræðu sem þarf að taka og eru hvorki betri né verri en hver önnur sem fram eru sett um samspil ólíkra trúarbragða hér á landi. Stefnuna er að finna í samþykktum flokksins og þarf að lesa áður en alhæfingar ummæla einstaklinga hefjast í þeim eina tilgangi að ráðast á vel meinandi stjórnmálaflokk með því að gera honum upp skoðanir.. Ég ætla rétt að vona að allt það sem ég, framsóknarmaðurinn, læt út úr mér um stjórnmál sé ekki sjálkrafa skilið sem niðurnjörvuð stefna flokksins sem ég styð. Að endingu ætla ég að leyfa mér að álykta að Þorgeir Ljósvetningagoði hefði verið Framsóknarmaður hefði hann verið uppi nú á tímum. Lausnamiðaður rökhyggjumaður.

Framhaldsskólar: Aðföng og afurðir

Nú berast fregnir af innritun nýnema í frmhaldsskóla. Þar er samviskusamlega tíundað hverjir þeirra eru vinsælastir og hafa litlar breytingar orðið á þeim lista. Allir eru þeir að sjálfsögðu í Reykjavík þar sem flestir nýnemar búa og færi gefst á að velja milli margra skóla. Í fréttinni kemur fram að meðaleinkunn þeirra sem inngöngu fá er alls staðar vel yfir 8 og ekki verður annað skilið en að í tveimur skólum sé meðaleinkunn úr grunnskóla yfir níu. Þetta leiðir hugann að því hve aðföngum framhaldsskóla (nýnemum) er misskipt á milli skóla. Aldrei verð ég var við þegar afurðirnar (námsárangur) eru gerður upp að þá sé fjallað um þessa staðreynd sem er lykilatriði í samanburði á framhaldsskólum landsins. Ef nemendur koma með ágætiseinkunn 9 að meðaltali inn í skólann er þá hægt að hrósa skóla sem skilar þeim út með lægri einkunn þó góð sé? Hverjar eru raunverulegar framfarir nemendanna? Getur verið að skóli sem tekur inn alla sem um hann sækja með einkunnina 6 að meðaltali og skilar þeim af sér með sömu einkunn eða hærri sé í raun betri skóli. Er það ekki umhugsunarvert?

Höfundur

Guðmundur Birkir Þorkelsson
Guðmundur Birkir Þorkelsson
Frá Laugarvatni og lengi kennari þar, skólameistari á Húsavík 1988-2009. Áhugi snýst m.a. um stjórnmál, menntmál og hrossarækt.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband